Um okkur
Hvað er Esja Engineering?
Esja Engineering er þjónustufyrirtæki fyrir orkuver og veitufyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu vélahluta og þjónustu á staðnum, með djúpa þekkingu á jarðvarmavirkjunum, meðal annars gufuhverflum og djúpborholudælum. Með teymi bæði í Evrópu og Bandaríkjunum færir Esja Engineering áratuga reynslu í hvert verkefni — ávallt með sterka áherslu á öryggi, gæði og náið samstarf við viðskiptavininn.
Þjónustan okkar
Hvað getum við boðið þér?
Esja Engineering er tækni- og þjónustufyrirtæki fyrir orkuver, veitufyrirtæki og aðra aðila sem reiða sig á öruggan rekstur mikilvægs vélbúnaðar. Við sérhæfum okkur í framleiðslu og útvegun vélahluta, tæknilegri ráðgjöf og þjónustu á staðnum.
Við tökum að okkur verkefni af ólíkum stærðum og gerðum og leggjum áherslu á hagkvæmar, öruggar og vandaðar lausnir sem styðja við stöðugan rekstur viðskiptavina okkar. Þjónusta okkar skiptist í meginatriðum í þrjá flokka: vélahluti, þjónustu á staðnum og fjarþjónustu.
Framleiðsla vélahluta
Við framleiðum vélahluti samkvæmt 2D eða 3D teikningum. Ef teikningar eru ekki til staðar höfum við hæfa tæknimenn og háþróaðan tækjabúnað til uppmælinga og gerð smíðateikninga.
Þjónusta hjá viðskiptavinum
Í þjónustu tökum við að okkur afmörkuð verkefni, reglubundna þjónustu eða vinnum hlið við hlið með viðskiptavinum okkar þegar þörf er á aukinni afkastagetu, sérfræðiþekkingu eða tímabundnum stuðningi. Teymi okkar býr yfir víðtækri reynslu af þjónustu og viðgerðum á dælubúnaði, rótorum, leiðiskóflum og öðrum vélbúnaðibúnaði orkuvera. Við komum að verkefnum frá bilanagreiningu og ástandsmati til skilgreiningar á ráðlögðu umfangi viðgerða.
Hvort sem verkefnið felur í sér skaðlausar prófanir, suðu, hitameðferð, ástandsmat eða undirbúning viðgerða og útvegun varahluta, geta viðskiptavinir treyst á þekkingu, reynslu og fagmennsku okkar starfsmanna.
Fjarþjónusta
Þjónusta þar sem starfsmenn þurfa ekki að vera stöðugt á staðnum. Verkefnið getur þá falist í undirbúningi verkefna, hönnun, sérsmíði á búnaði, innkaupum á tækjum, yfirferð eða uppbyggingu ferla, fjargæslu og gerð viðhaldsáætlana.
Verkefni geta verið af öllum stærðum — og ekkert verkefni er of lítið.
Við lögum þjónustu okkar að þínum kröfum með gæði og öryggi að leiðarljósi.
Hvað skilur okkur frá öðrum
Hvað skilur okkur frá öðrum.
Þjónusta okkar mótast af verkefninu hverju sinni og þeim þörfum sem viðskiptavinurinn stendur frammi fyrir. Við reynum að vera sem mest á staðnum þegar það skiptir máli, því nálægð við búnaðinn, aðstæður og fólkið á verkstað skilar oft betri og hraðari niðurstöðu.
Við byggjum einnig á tengslaneti sérhæfðs fagfólks, framleiðenda og þjónustuaðila. Það hjálpar okkur að finna rétta þekkingu, rétta íhluti eða rétta lausn þegar verkefnið kallar á það.
Esja Engineering vinnur ekki út frá einni fastri lausn eða einum birgja. Við getum leitað til fleiri aðila og borið saman möguleika, sem gefur okkur sveigjanleika þegar leysa þarf verkefni við ólíkar aðstæður.
Teymi okkar getur stutt við viðskiptavini þegar þörf er aukins krafts, reynslu eða aðstoð við vélaþjónustu, viðgerðir eða framleiðslu. Við leggjum áherslu á skýr samskipti, sameiginlegan skilning á verkefninu og lausnir sem skapa viðskiptavinum okkar aukið virði.
Uppruni
Hvaðan komum við?
Esja Engineering er með höfuðstöðvar á Íslandi og starfrækir dótturfélög á Ítalíu og í Bandaríkjunum. Þetta gerir okkur kleift að vera nálægt viðskiptavinum og birgjum, hvar sem virkjanir þeirra og búnaður eru staðsett.
Nálægð við lykilbirgja tryggir gott viðbragð og gerir okkur kleift að afhenda vörur og þjónusta af réttum gæðum
Esja Engineering leggur ríka áherslu á öryggi og gæði, sem við teljum sterklega tengd og ekki hægt að líta framhjá.
Við erum þjónustufyrirtæki.
Og við gerum okkar besta til að laga þjónustuna að þörfum viðskiptavinarins.
Hafa samband